tjalds
Tjaldsvæðið
Opið allt árið um kring
tjalds
Tjaldsvæðið
Fyrir stóra sem smáa
tjalds
Tjaldsvæðið
Fyrir allar tegundir ferðamanna
previous arrow
next arrow

Glæsileg aðstaða

Tjaldsvæði Gestshúsa er stórt og fallegt. Aðstaðan er til fyrirmyndar og staðsetningin einstaklega góð. Mikil veðursæld er á svæðinu þar sem jaðrar þess eru skógi vaxnir. Gestir hafa aðgang að glæsilegri þjónustumiðstöð með snyrtingum, sturtum, eldunaraðstöðu og stórum matsal.  Við innkeyrsluna inn á stæðin er salernishús.  Í þjónustumiðstöð eru salerni sem eru opin meðan þjónustumiðstöðin er opin. Norðan við tjaldmiðstöðina er svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og vatnstönkum sem og slanga til að fylla neysluvatn. Í og við þjónustumiðstöð er í boði frítt þráðlaust internet.

Svæðið skiptist í tvö aðskilin svæði, annars vegar svæði fyrir tjöld og hins vegar svæði fyrir húsbíla, tjaldvagna og fellihýsi með aðgangi að rafmagni. Rafmagnstenglar eru 40 talsins og eru staðsettir utan með svæðinu. Á vagnsvæðinu eru rólur fyrir börn og Grýlupottar sem þykja vinsælir hjá yngri kynslóðinni.

Heitir pottar eru á svæðinu og standa gestum til boða gegn vægu gjaldi. Börn yngri en 18 ára skulu vera í fylgd forráðamanna.  Pottarnir eru opnir á opnunartíma þjónustumiðstöðvar.  

 Í þjónustumiðstöð er boðið upp á  morgunverð (2500kr per.pers.) kaffi, gos, bjór og  léttvín. Þjónustumiðstöðin er opin frá 07:30- 23:00 á sumrin og kl. 08:00 – 20:00 á veturna.

Tjaldsvæðið er staðsett í göngufæri við miðbæinn, sundlaugina, íþróttavöllinn, veitingastaði og matvöruverslanir.

Verðskrá 2024

Einn fullorðinn + tjald/hjólhýsi og bíll 3.500kr.
Hver gestur umfram fyrsta gest 1.500kr.
Börn 13 – 18 ára í fylgd með forráðamanni 1.000kr. 
Börn 13 ára og yngri frítt
Einn eldriborgari/öryrki + hjólhýsi/húsbíll 3000kr.
Auka gestur 1400 kr.
Rafmagn 1100 kr.
Rafmagn eldri borgarar/öryrki 900 kr.
Þvottavél 900 kr.
Þurrkari 900 kr.
Heitur pottur 500 kr.
Te/Kaffi 350 kr.
Morgunverðarhlaðborð 2500kr 

 

Á kótelettunni, Sumar á Selfossi og um Verslunarmannahelgi er 25 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu.

 

 

Komdu við í þjónustumiðstöð áður en þú leggur/tjaldar! 

Tjaldsvæðið er opið allt árið um kring

Einstaklingar þurfa ekki að bóka,við höfum nóg pláss! Komið í þjónustumiðstöð áður en þið leggið hjólhýsum eða tjaldið og fáið upplýsingar og hvar skal leggja/tjalda.

Hópar, vinsamlega hafið samband í gegnum tölvupóst á gesthus@gesthus.is

Myndasafn

Þú getur skoðað tjaldsvæðið og aðstöðuna í gegnum myndasafn okkar.

Skilmálar og Algengar spurningar

Þráðlaust internet

Í og við þjónustumiðstöð er í boði frítt þráðlaust internet.

Frí bílastæði

Bílastæði eru innifalin í dvalargjaldi

Rafmagn

Rafmagnstenglar eru 40 talsins og eru staðsettir utan með svæðinu

Heitir pottar

Heitir pottar eru á svæðinu og standa gestum til boða gegn vægu gjaldi.

Losun ferðasalerna og áfylling á drykkjarvatni

Norðan við tjaldmiðstöðina er svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og fylla á neysluvatn

Þvottavél og þurrkari

Gestir hafa aðgang að þvottavél og þurrkara gegn gjaldi sem greitt er í kortasjálfsala við vélarnar

Þjónustumiðstöð

Gestir hafa aðgang að góðri tjaldmiðstöð með snyrtingum, sturtum, eldunaraðstöðu og stórum matsal.  Einnig er salernishús staðsett úti á svæði.

Morgunverður

Morgunverður er í boði frá kl. 07:00-09:30 maí – september 

Þarf að bóka fyrirfram?

Einstaklingar þurfa ekki að bóka, við höfum nóg pláss! 

Hópar, vinsamlega hafið samband í gegnum tölvupóst á gesthus@gesthus.is

Hvar greiði ég ?

Gestir þurfa að skrá sig og greiða inn í þjónustumiðstöð okkar. Vinsamlega athugaðu að rukkun út á svæði er þjónusta sem greitt er aukalega fyrir.

Reglur á tjaldvæðinu

Verið velkomin á Tjaldsvæði Gesthúsa

  • Gestir skulu tilkynna komu sína í móttöku og greiða dvalargjöld ÁÐUR en tjaldað er, eða ferðavögnum lagt. Rukkun úti á svæði er þjónusta sem greitt er aukalega fyrir.
  • Öll óþarfa umferð ökutækja á tjaldsvæðinu er ekki leyfð frá miðnætti til 07:00
  • Sýnið tillitssemi og rjúfið ekki næturkyrrð að óþörfu. Kyrrð og ró skal vera eftir miðnætti.
  • Misbrestur á umgengni / háttvísi gagnvart öðrum gestum, starfsfólki og aðstöðu getur varðað fyrirvaralausum brottrekstri af svæðinu án bóta fyrir viðkomandi.
  • Ölvun er bönnuð á svæðinu.
  • Vinnið ekki spjöll á náttúrunni.
  • Allt sorp skal láta í ruslagám á svæðinu. Dósir og flöskur í dósagám.
  • Allur opinn eldur er bannaður.
  • Á tónlistarhátíðinni Kótilettunni, um verslunarmannahelgina og á Sumar á Selfossi er 25 ára aldurstakmark.  Barnafjölskyldur eru undanþegnar.

ENGIN ÁBYRGÐ ER TEKIN Á EIGUM TJALDGESTA

Afbókunarskilmálar fyrir hópa

Þú getur afpantað þér að kostnaðarlausu þar til 7 dögum fyrir komu. Þú greiðir heildarverð bókunarinnar ef þú afpantar innan 7 daga fyrir komu. Ef þú mætir ekki greiðir þú heildarverð bókunarinnar.

Heimilisfang

Engjavegur 56,
800 Selfoss

Heyrðu í okkur

(+354) 482 3585

Sendu tölvupóst

gesthus@gesthus.is